Mortél, við matargerð

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"825. Mortél eða steytill úr eirblöndu. Þetta mortél átti hér fyrst frú Johanne Ericsen skipstjórafrú (síðar Johanne Roed). Maður hennar hinn fyrri hét Morten Ericsen og fórst hann hér við sjötta mann á skútu sinni árið 1847. Þetta voru dönsk hjón og frúin ruddi hér brautir í vissum málum. Hún hóf að reka veitingahús eftir að hún missti mann sinn. Um 1850 hóf hún, að rækta hér kartöflur. Sú ræktun var óþekkt áður í Eyjum. Þar ruddi hún hinar markverðustu brautir, því að Eyjabúar létu sér framtak hennar sér að kenningu verða og ræktuðu kartöflur í stórum stíl um árabil. Frú Sigríður Árnadóttir Johnsen, húsfreyja í Frydendal og kaupkona þar um skeið, átti þetta mortél eftir daga hinnar dönsku frúar. Hjónin Sigfús og Jarþrúður Johnsen gáfu Byggðarsafninu grip þennan."
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sigfús M. Johnsen
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Gefandi: Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen
Eigandi: Ane Johanne Frederiksdatter Grüner Eriksen Roed
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Gefandi: Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen
Eigandi: Ane Johanne Frederiksdatter Grüner Eriksen Roed
Safnnúmer
825
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Mortél, við matargerð
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.