Krukka, f. mat

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"820. Leirkrukka. Þessa leirkrukku átti hér og notaði á heimili sínu frú Hildur Solveig Thorarensen, kona Bjarna Einars Magnússonar sýslumanns hér í Eyjum á árunum 1861-1871. Frúin var dóttir Bjarna amtmanns Thorarensen. Svo sem mörgum Eyjamönnum er kunnugt, þá stofnaði Bjarni sýslumaður bókasafn Vestmannaeyja árið 1862 með öðrum góðum borgurum kauptúnsins og svo Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja sama ár. Þegar sýslumannshjónin fluttu burt úr Eyjum árið 1871, gaf sýslumannsfrúin vinkonu sinni, frú Kristínu Gísladóttur á Búastöðum, krukkuna, sem þá þótti mikill kostagripur. Frúrnar voru vinkonur miklar og atkvæðamiklar konur á sínum tíma hér í byggð. Leirkrukku þessa hafði frú Hildur eignazt eftir móður sína, frú Hildi Bogadóttur fræðimanns Benediktssonar að Staðarfelli. Líklega voru að jafnaði geymdar brenndar kaffibaunir í krukkunni.
Frú Fríður Lárusdóttir frá Búastöðum erfði leirkrukku þessa eftir móður sína, frú Kristínu Gísladóttur, og gaf hana Byggðarsafninu."
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Jórunn Fríður Lárusdóttir
Eigandi: Kristín Gísladóttir
Eigandi: Hildur Thorarensen Bogadóttir
Eigandi: Hildur Solveig Bjarnadóttir Thorarensen
Eigandi: Kristín Gísladóttir
Eigandi: Hildur Thorarensen Bogadóttir
Eigandi: Hildur Solveig Bjarnadóttir Thorarensen
Safnnúmer
820
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Krukka, f. mat
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.