Kökudiskur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "816. Kökudiskur. Um langt árabil giltu þau óskráðu lög í Vestmannaeyjum, að heimili, sem voru aflögufær um leirvörur matarleir, ,,Ieirtau” svo sem diska, bolla og könnur, lánuðu þessi tæki sveitungunum, ef mikils þurfti með, t. d. ef efnt var til brúðkaupsveizlu eða annars matarsamkvæmis. Sumar þessar leirvörur urðu býsna gamlar og urðu sumstaðar eins konar erfðagripir, Svo var um disk þennan. Þennan svartrósótta ,,veizludisk” átti síðast frú Ólöf Lárusdóttir, húsfr. á Kirkjubóli á Kirkjubæjum og var hann kunnur „veizludiskur” hér í byggð um langt skeið. Frú Ólöf erfði hann eftir foreldra sína, Lárus hreppstjóra Jónsson (d. 1895) og k. h. frú Kristínu Gísladóttur (d. 1921). Þau hjón eignuðust diskinn gamlan, er þau giftust árið 1862"

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
816
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kökudiskur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.