Munir
1930

Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Skrautletrað þakkarbréf til Tómasar Tómassonar ölgerðarmanns fyrir tjaldið Rangæingabúð, frá Ungmennafélögum Rangárvallasýslu. Innrammað í útskorinn tréramma.
Rangæingabúð var samkomutjald, fyrst notað í jarðarför Jóhanns Teits Magnússonar bónda í Snjallsteinshöfða á Landi, 29.ágúst 1929. Árið eftir, 1930 var því tjaldað á Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Tjaldið var talið rúma 250 manns. Gefendur tjaldsins voru Rangæingarnir Tómas Tómasson frá Miðhúsum í Hvolhreppi, sem stofnaði Ölgerðina Egill Skallagrímsson og Jón Ólafsson frá Sumarliðabæ í Ásahreppi, Alþingismaður og bankastjóri Útvegsbankans.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1930
Safnnúmer
Safnnúmer A: R-9705
Stærð
38,5 x 31,7 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Þakkarbréf
