Kaffibolli

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"775. Kaffibolli með gylltri rönd. Á bolla þessum stendur letrað: Hilsen fra Danmark. Vitað er með vissu, að bolla þennan átti frú Johanne Ericsen, dönsk kona (síðar frú Johanne Roed), sem settist hér að með manni sínum, Morten Ericsen, skipstjóra, á áratugnum 1840-'50. Hann gerði hér út og stjórnaði skútu, er fórst með allri áhöfn, árið 1847. Frú Johanne giftist síðar C. Roed veitingamanni og bjó hér í Eyjum til æviloka (1878). Frúin var hin merkasta kona, sem rak hér fyrst allra veitingahús, sem hún seldi Jóhanni Jörgen Johnsen árið 1878. Það var ,,Vertshúsið” svokallaða. Frú Johanne kenndi Eyjabúum kartöflurækt. Ræktun þeirra var óþekkt í Eyjum þar til hún tók að rækta þær í óvild bónda, sem töldu hana skemma jörðina með því að fletta af henni grasrótinni! Frú Sigríður Árnadóttir, kona Jóhanns J. Johnsen, geymdi þennan bolla í fórum sínum tugi ára til minningar um hina merku, dönsku konu. S. M. J. gaf hann Byggðarsafninu."
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sigfús M. Johnsen
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Arkitekt: Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen
Eigandi: Ane Johanne Frederiksdatter Grüner Eriksen Roed
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Arkitekt: Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen
Eigandi: Ane Johanne Frederiksdatter Grüner Eriksen Roed
Safnnúmer
775
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kaffibolli
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.