Dragkista

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "883. Dragkista, sem er smíðuð úr mahoní. Hún á þessa sögu: Árið 1880 rak langt og gildvaxið mahonítré í Gunnarsurð, sem er í krikanum milli Kervíkurfjalls og Sæfells. Þarna átti þá rekaréttindi Jóhann J. Johnsen, veitingamaður og bóndi í Frydendal, en hann hafði byggingu fyrir einni Kirkjubæjajörðinni (Bænhúsjörðinni á Kirkjubæjum). Tré þetta var þurrkað vandlega og síðan rist í borð með stórviðarsög lngimundar bónda Jónssonar á Gjábakka (sjá nr. 489). Hjá hjónunum í Frydendal dvaldist þá Árni trésmiður Árnason, sem stundaði sjó í Eyjum á útvegi Frydendalshjónanna, þegar hann vann ekki að smíðum. Árni Árnason hafði fyrir skömmu lokið við að smíða þessa dragkistu, þegar hann drukknaði, en það var árið 1887. Til fyrirmyndar um smíði þessa hafði Árni smiður dragkistu hjónanna í Nýjábæ, sem prestshjónin á Ofanleiti höfðu átt. (Sjá nr. 881). Síðast átti þessa dragkistu Árni verzlunarmaður Jónsson í Odda (nr. 63 A) við Vestmannabraut, sem var starfsmaður Gunnars Ólafssonar og Co. um langt árabil. Hann var frá Helgusöndum í Landeyjum, f. 12. apríl 1869 og dáinn 21. júní 1963. Hann gaf Byggðarsafninu dragkistuna. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
883
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Dragkista
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.