Stofuhurð

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "896. Stofuhurð. Hún hefur einhverntíma verið máluð græn. Stofuhurð þessa smíðaði að danskri fyrirmynd Þórarinn Hafliðason, mormónaprestur hér í Eyjum. Hann var „snikkari”, færður í Danmörku. Þórarinn Hafliðason drukknaði hér vestan við Heimaey árið 1852. Hurðin er þess vegna orðinn minnst 125 ára. Hún var um tugi ára notuð í kjallara íbúðarhúss hjónanna á Kirkjubæ, frú Höllu Guðmundsdóttur og Guðjóns bónda Eyjólfssonar. Síðustu ábúendur á þessari Kirkjubæjajörð fyrir gos voru hjónin frú Þórdís Guðmundsdóttir og Magnús Pétursson bónda á Kirkjubæ Guðjónssonar. Þessi hjón gáfu Byggðarsafninu hurðina. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
896
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Stofuhurð
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.