Grautarskál
1892 - 1894

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"759. Grautarskálar, tvær litlar, rósóttar. Þær eiga þessa sögu : Á Kirkjubóli, einni af Kirkjubæjajörðunum á Heimaey, bjuggu hjónin Guðjón bóndi Björnsson (f. 2. maí 1861) og frú Ólöf Lárusdóttir frá Búastöðum (f. 19. des. 1862). Þau eignuðust fjögur börn. Elzt þeirra var Þórður (f. 28. september 1892; drukknaði 4. marz 1914,). Nokkru eftir fæðingu hans var önnur skálin keypt handa honum. Hún er þessvegna 83 ára, þegar þetta er ritað.
Annar sonur þeirra hjóna var Bergur, hagleiksmaður mikill. M. a. iðkaði hann útskurð, sem hér er að litlu leyti til sýnis á Safninu. Bergur Guðjónsson var fæddur 5. júlí 1894 (d. 5. maí 1940). Honum var gefin hin skálin, þegar hann var á fyrsta árinu. Systir þeirra bræðra, frú Lára Guðjónsdóttir húsfr. að Kirkjulandi hér í bæ, gaf Byggðarsafninu báðar skálarnar."
Aðrar upplýsingar
Eigandi: Guðjón Bergur Guðjónsson
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Lára Kristín Guðjónsdóttir
Eigandi: Þórður Guðjónsson
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Lára Kristín Guðjónsdóttir
Eigandi: Þórður Guðjónsson
Ártal
Aldur: 1892 - 1894
Safnnúmer
759
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Grautarskál
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.