Askur
1810 - 1830

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"714. Askur með fagurlega útskornu loki. Hann er sagður vera um 150 ára gamall. Upprunalega er askur þessi frá Sléttabóli í Suðursveit. A sínum tíma var hann gefinn prestsfrúnni á Kálfafellsstað í sömu sveit, mad. Helgu Skúladóttur, konu séra Péturs Jónssonar sóknarprests þar. Askar voru helzt smíðaðir úr góðum rekaviði eins og þessi askur. Til þess að herða viðinn og gera askinn bragðlegri helltu hreinlætiskonur í þá nýja sjóðandi sortulyngsseiði og lét það standa í þeim 23 dægur. Víða í íslenzkum sveitum var spónamatur etinn úr öskum fram að síðustu aldamótum og fram yfir þau. Þá tóku stóru grautarskálarnar við. Hjónin, frú Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen og Sigfús M. Johnsen gáfu ask þennan Byggðarsafninu en frúin erfði hann eftir foreldra sína á Kálfafellsstað. "
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sigfús M. Johnsen
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Helga Skúladóttir
Gefandi: Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Helga Skúladóttir
Gefandi: Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen
Ártal
Áætlaður aldur frá: 1810 - 1830
Safnnúmer
714
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Askur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.