Asklok

1861
Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "713. Asklok. Það er ársett 1861. Lárus Jónsson, síðar kunnur bóndi og hreppstjóri í Vestmannaeyjum, og Kristín Gísladóttir trúlofuðust 1861. Þá gaf Lárus Kristínu heitmey sinni askinn, sem lokið er af. Þessi hjón gengu í hjónaband árið eftir eða 1862. Þau fluttu til Vestmannaeyja frá Pétursey, þar sem þau hófu búskap, og settust að í Kornhólsfjósi 1863. Hófu búskap á Búastöðum 1870. Dóttir þeirra var frú Ólöf á Kirkjubæ. Dóttir hennar, frú Lára Guðjónsdóttir á Kirkjulandi, gaf Byggðarsafninu asklokið á 100 ára afmæli þess, eða 1961. "

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1861
Safnnúmer
713
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Asklok
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.