Dragkista

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "880. Dragkista (kommóða). Sannanlegt er, að þessi dragkista er merra en 200 ára gömul. Dragkistu þessa smíðaði ,,kóngssmiðurinn” í Þórlaugargerði, Guðmundur bóndi þar Eyjólfsson. Kóngssmiðir voru þeir einir titlaðir í Eyjum, sem lært höfðu smíðar í Danmörku, voru ,,snikkarar”, og höfðu það að atvinnu öðrum þræði að stunda smíðar á vegum konungsvaldsins í Eyjum, byggja hús fyrir kónginn og gera við hin opnu fiskiskip hans, en konungsvaldið danska rak hér alla útgerð um tveggja alda skeið. Guðmundur Eyjólfsson setti t. d. þakið á Landakirkju, sem byggð var á árunum 1774-1778. Þegar hjónin Lárus Jónsson og frú Kristín Gísladóttir fengu ábúð á VestriBúastöðum eftir Sigurð Torfason hreppstjóra árið 1870, þá lét hreppstjórinn hina nýju ábúendur ,,erfa” dragkistuna. Dragkistu þessa gaf frú Júlíana Sigurðardóttir, fyrrv. húsfreyja á Búastöðum, Byggðarsafninu, en hún var gift Pétri Lárussyni bónda, syni Búastaðahjónanna frú Kristínar og Lárusar. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
880
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Dragkista
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.