Gólfteppi

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "685. Gólfteppi. Þetta eru leifar af gömlu gólfteppi, sem frú Sigríður Árnadóttir í Frydendal og vinnukonur hennar spunnu veturinn 1880. Bandið var ýmist látið halda sauðarlitnum eða litað jurtalitum úr Vestmannaeyjum. Síðan var slyngasti vefari í Eyjum, Pétur bóndi Benediktsson í Eystra-Þórlaugargerði, fenginn til að vefa teppið. Það var síðan á stofugólfi í Frydendal eða ,,Húsinu”, eins og það var nefnt á máli Eyjabúa, fram undir aldamót og þá orðið slitur, sem hér geymast leifar af. Sigfús M. Johnsen, fyrrv. bæjarfógeti, sonur frú Sigríðar Árnadóttur, geymdi lengi þessar leifar af tóskaparstarfi móður sinnar og gaf þær síðast Byggðarsafninu. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
685
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Gólfteppi
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.