Saumavél
1901

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"545. Saumavél. Þessa saumavél átti frá Þórunn Þórðardóttir. Vesturvegi 23 hér í bæ, eiginkona Unnsteins Sigurðssonar, bátasmiðs. Saumavél þessari fylgir dálítil saga, sem hefur sérlegt sögulegt gildi og getur verið saga flestra saumavélanna, sem Byggðarsafnið á.
Saumavélin var keypt í Brydeverzlun í Vík í Mýrdal árið 1901. Hún kostaði þá 32 krónur, ef hún var tekin út í reikning, eins og það var kallað, en 30 krónur, væri hún greidd út í hönd. Árskaup kaupandans, Þórunnar Þórðardóttur var þá 30 krónur og þótti gott kaup, enda var hún orðlögð dugnaðarvinnukona. Frú Þórunn Þórðardóttir notaði vélina mikið. Aldrei bilaði hún.
Frúin gaf Byggðarsafninu saumavélina um síðastliðin áramót."
Aðrar upplýsingar
Ártal
Aldur: 1901
Safnnúmer
545
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Saumavél
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.