Spanstokkur, notað við vefnað

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "654. Spanstokkur. Hann var notaður til þess að halda jafnri breidd á voð í vefstól, meðan ofið var. Þennan spanstokk áttu hjónin á Kirkjubóli á Kirkjubæ, frú Ólöf Lárusdóttir og Guðjón Björnsson. Foreldrar Guðjóns bónda, Björn bóndi Einarsson og frú Guðríður Hallvarðsdóttir, bjuggu á einu býli Kirkjubæja á árunum 1861 til 1884. Frú Ólöf Lárusdóttir húsfr. á Kirkjubæ eftir tengdaforeldra sína, gaf Byggðarsafninu spanstokkinn. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
654
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.