Rokkur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "624. Rokkur, svartur að lit. Þennan rokk átti frú Guðríður Jónsdóttir frá Káragerði í Landeyjum, húsfr. á Heiði (nr. 34) við Heimagötu, kona Sigurðar Sigurfinnssonar, hreppstjóra. Hún varð síðar kona Guðjóns Jónssonar, skipstjóra á Heiði (nr. 19) við Sólhlíð. (Hús þetta var oft nefnt Stóra-Heiði og var steinhús, sem skemmdist mikið í gjóskuregninu í Eyjum við eldgosið 1973 og var brotið niður til grunna sumarið 1975). Eftir fráfall Guðríðar Jónsdóttur kvæntist Guðjón skipstjóri Bjarngerði Ólafsdóttur. Hún gaf Byggðarsafninu rokkinn eftir lát Guðjóns skipstjóra. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
624
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Rokkur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.