Saumavél

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "539. Saumavél ,,(saumamaskína”). Þetta er elzta saumavélin í Byggðarsafninu og e. t. v. elzta saumavél, sem til er á Íslandi, að mér er tjáð.Saumavél þessa átti frú Karólína Kristín Oddsdóttir húsfreyja í Jómsborg við Heimatorg, kona Jóns Sighvatssonar báksala þar. Veturinn 1879-1880 var Karólína vinnukona hjá héraðslæknishjónunum í Landlyst, Þorsteini Jónssyni og frú Matthildi Magnúsdóttur, þá 23 ára. Nokkrum árum síðar giftist hún Jóni Sighvatssyni. Þau hjónin fluttust til Eyja frá Efri,Holtum árið 1898 og bjuggu hér æ síðan. Þau létust hér bæði á fjórða áratugnum. Þorsteinn Jónsson (Johnson) bóksali hér, sonur þeirra hjóna, gaf Byggðarsafninu vélina."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
539
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Saumavél
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.