Prjónastokkur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"615. Prjónastokkur, skrautmálaður. Prjónastokkur þessi er mjög gamall. Frú Katrín Þórðardóttir í Júlíushaab á Tanganum hér á Heimaey, flutti hann með sér hingað til Eyja árið 1869, en hún var tengdamóðir Gísla verzlunarstjóra Engilbertssonar í Júlíushaabverzlun. Eiginmaður hennar var Þórarinn bóndi Þórarinsson frá Mörtungu á Síðu. Frú Katrín Þórðardóttir eignaðist prjónastokkinn, þegar hún var fermd eða um það bil 1820. Þau hjón bjuggu í Neðra-Dal undir Eyjafjöllum. "
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
615
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Prjónastokkur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.