Krókarefskefli

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "614. Krókarefskefli. Þau voru smíðuð úr einni spýtu og þóttu völundarsmíð, ef vel tókst að telgja þau. Þau þóttu jafnan dýrgripir. Miklar hannyrðakonur áttu þau jafnan. Þær höfðu á þeim mislitan þráð til útsauma. Á þeim voru 2 eða 3 þráðahöld, sem svo voru nefnd. Þetta krókarefskefli áttu hjónin Sigfús M. og Jarþrúður P. Johnsen og gáfu það Byggðarsafninu."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
614
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Krókarefskefli
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.