Kembulár

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"613. Kembulár eða lyppulár. Kembulár þennan átti frú Ingibjörg Jónsdóttir, húsfreyja í Hraungerði (nr. 9) við Landagötu. Hún var síðari kona Gottskálks sjómanns Hreiðarssonar og stjúpa Sigurðar Gottskálkssonar síðast bónda á Kirkjubæ. Í kembulárinn voru lagðar kembur, þegar verið var að kemba ullina. Áður en rokkar komu til sögunnar, var ullin lyppuð ofan í lárinn. Þar af nafnið lyppulár. Ullin var þá spunnin á halasnældu eins og hrosshár.
Kembulár þessi á dálitla sögu. Móðir frú Ingibjargar í Hraungerði, frú Katrín Guðmundsdóttir, eignaðist lárinn úr dánarbúi séra Ásmundar sóknarprests í Odda á Rangárvöllum Jónssonar. Hann lézt árið 1880. Móðir séra Ásmundar, frú Karítas Illugadóttir, kona Jóns lektors Jónssonar á Bessastöðum, átti lárinn upphaflega. Hún lézt árið 1837. Þá eignaðist sonur hennar, séra Ásmundur, lárinn."
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
613
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.