Ritsími

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "598. Ritsímalykill. Þetta er hinn fyrsti svokallaði ritsímalykill, sem notaður var með Morstækjunum hér í Eyjum. Með morslykli þessum voru búnir til punktar og strik, sem mynduðu stafrófið eða táknuðu stafi eftir punkta- og strikafjölda. T. d. var A táknað með . - og B með --... og C með -.-. o. s. frv. Þrír punktar áttu að vera jafnlangir og eitt strik og bil milli punkta og striks jafnlangt og einn punktur. Símritarar gátu náð ótrúlegum hraða í sendingu morsmerkja með svona ritsímalyklum. Algengt var að senda 150-160 stafatákn á mínútu. Morslykill þessi var tekinn í notkun hér á landi 1906. Þessi morslykill var gefinn Arna Árnasyni, símritara frá Grund við Kirkjuveg (nr. 31), árið 1919. Þá lærði hann að nota lykilinn. Það þótti þá mikið afrek í símritarastarfínu. Árni Árnason gaf Byggðarsafninu lykilinn ásamt táknum þeim, sem hér eru birt. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
598
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ritsími
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.