Karlmannsúr

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "583. Karlmannsúr. Á árunum 1878-1882 reisti Jóhann Jörgen Johnsen í Vestmannaeyjum tvílyft timburhús byggt úr finnskum kjarnaviði. Meira en tvo tugi ára var hús þetta sjúkraskýli Eyjamanna, og veitingahús og gististaður gesta í kauptúninu. Yfirsmið við bygginguna sóttu hjónin, sem byggðu þetta langstærsta hús í kauptúninu, norður í Skagafjörð. Hann hét Árni Árnason. Hann settist síðan að í Eyjum og stundaði hér sjó, þegar hann var ekki við smíðar. Hann drukknaði í fiskiróðri árið 1887. Árni Árnason húsasmiður átti þetta úr. Sigfús M. Johnsen, sonur hjónanna Jóhanns J. Johnsen og frú Önnu Sigríðar Árnadóttur, sem byggðu húsið, eignaðist úrið og gaf það Byggðarsafninu."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
583
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Karlmannsúr
Efnisorð:
Úr
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.