Púði

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "504. Ísaumspúði , ("broderingspúði”), sem frú Katrín Þórðardóttir í Júlíushaab á Tanganum átti. Hún var tengdamóðir Gísla Engilbertssonar verzlunarstj. Kona verzlunarstjórans, frú Ragnhildur Þórarinsdóttir í JúIíushaabb, dóttir Katrínar, notaði þennan púða, er hún skreytti brúðarklæðnað sinn árið 1868. (Sjá hann á Byggðarsafninu). ,,Broderings” púði þessi er gjöf frá frú Elínborgu Gísladóttur í Laufási til Byggðarsafnsins, en hún er dótturdóttir frú Katrínar Þórðardóttur. Geymdur er í knipplingaskríni í Byggðarsafninu afgangur af silfurþræði þeim, sem frú R. P. notaði, þegar hún saumaði sér brúðkaupsklæðnaðinn veturinn 1868."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
504
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Púði
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.