Skaröxi

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"475. Skaröxi, stór og mjög gömul. Þessa sérlegu skaröxi átti Jón bóndi og smiður Austmann í Þórlaugargerði. Hann var sonur séra Jóns .J. Austmann sóknarprests að Ofanleiti. Fæddur var hann að Felli í Mýrdal árið 1814. Kona Jóns bónda hét Rósa Hjartardóttir. Sonur þeirra hjóna var Hjörtur Jónsson bóndi í Þórlaugargerði. Hann var fyrri eiginmaður Guðríðar Helgadóttur. Síðari maður hennar var Einar Sveinsson, bóndi í Þórlaugargerði og umsjónarmaður barnaskólans hér um árabil. Þau voru foreldrar Hjartar Einarssonar á Geithálsi, hins góðkunna samborgara okkar hér í kaupstaðnum. Frá þessu fólki er öxin gefin Byggðarsafninu. "
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
475
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skaröxi
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.