Portrait Series (Gelbe Musik with Sunflowers)
2016, Elina Brotherus

Varðveitt hjá
Listasafnið á Akureyri
Vísun í John Baldessari: Portrait Series, 1974:
„Ég hef alltaf forðast það að gera portrettmyndir sem eitthvað sérstakt í sjálfu sér. Andlit er svo kraftmikið og gnæfir yfir allt annað. Í þessari ljósmyndaröð hef ég falið andlitið á mismunandi hátt, í tilraun minni til að hleypa öðrum upplýsingum upp á yfirborðið og skilgreina manneskjuna (---) ef list er ráðgáta, þá er andlitið svikari og ætti að vera hulið.“
Elina Brotherus (f. 1972 í Finnlandi) fæst að mestu við gerð sjálfsmynda og landslagsmynda. Í verkum Elinu má skynja sterka nálægð hennar sjálfrar, berskjaldaða og hispurslausa. Verk Elinu einkennast af marglaga frásögnum sem sveiflast á milli kímni og trega. Í mörgum þeirra setur Elina sér leikreglur og fer eftir þeim innan ramma myndavélarinnar, sem er í senn leikfélagi hennar og sálarspegill.
Verk Elinu vöktu snemma athygli vegna nálgunar hennar á notkun ljósmiðla til endurspeglunar á tilfinningalífinu og leikriti hins daglega lífs. Hún kannar persónulegar en í senn sammannlegar upplifanir, sjálfsmyndina, tímahugtakið, nærveru og fjarveru ástarinnar.
Elina sýndi verk sín í Listasafninu á Akureyri haustið 2019 og gaf þá safninu þetta verk.
Aðrar upplýsingar
Titill
Titill: Portrait Series (Gelbe Musik with Sunflowers)
Annað verkheiti: Úr ljósmyndaseríunni The Baldessari Assignments
Ártal
Aldur: 2016
Safnnúmer
Safnnúmer A: Listak-867
Stærð
80 x 110 cm
Aðfangategund
Flokkun
Efnisorð / Heiti
