Buxur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "396. „Lundabuxur”. Buxur lundaveiðimanna slitnuðu fljótt og illa, þar sem þeir sátu með veiðiháf sinn alla daga fuglaveiðitímans á bergsillum og brúnum við veiðarnar. Þá var það ráð tekið að klæða þær utan eins og buxur þessar sýna. Að lundatímanum liðnum, var hlífinni af þeim flett, og voru þá buxurnar jafngóðar eftir. Frú Guðrún Grímsdóttir, fyrrv. húsfreyja á Oddstöðum, „bætti” buxurnar, en svo var þetta kallað á Eyjamáli, og gaf þær síðan Byggðarsafninu. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
396
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Buxur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.