Höggstokkur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "393. Höggstokkur. Þetta höggtré er á þrem fótum og dæmigert handa vestmanneyisku bændaheimili. Í gegnum höggtréð er vítt gat. Höggstokkur þessi var notaður til að höggva á vængi af lunda, haus og fætur, þegar fuglinn var „verkaður” til matar. Þá féllu þessir hlutar hans niður um gatið, niður í ílát, sem stóð þar undir. Þessi háttur á verkinu sparaði vinnu og hafði aukið hreinlæti í för með sér. Höggstokkurinn er gefinn Byggðarsafninu úr dánarbúi Jóns bónda Péturssonar í Þórlaugargerði. Upprunalega átti faðir hans, Pétur bóndi Benediktsson í Þórlaugargerði, áhald þetta og mun hafa smíðað það. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
393
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Höggstokkur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.