Íslenskur burstabær

1968
Varðveitt hjá
Þórbergssetur
Eftilíking íslensks burstabæjar. Fjórar burstir, gluggar á framhlið. Haganlega smíðaður af Þorsteini Magnússuni (1899-1976) frá Lækjarhúsum í Suðursveit. Þorsteinn lenti í Sæbjargarslysinu 4. maí árið 1920. Þá var róið á opnum skipum til fiskjar frá Bjarnahraunssandi, sem að var aðalútróðrastaður sveitarinnar. Skipið fékk á sig stórsjó í lendingu, svo það steyptist fram yfir sig og flestir lentu í sjónum. Þorsteinn bjargaðist en faðir hans drukknaði við annan mann auk þess sem einn skipverja slasaðist illa. Þorsteinn flutti stuttu síðar til Reykjavíkur, vann þar við smíðar og viðgerðir m.a. á Kleppsspítalanum í Reykjavík. Bærinn er gerður úr pappa. Á þakið er límt viðarkurl og á framhliðina grófgerður sandur og litlir steinar. Inn í bænum er ljós sem lýsir hann upp Líkanið er gert í mars 1968 vegna þáttanna um Krumma, frægrar persónu úr Stundinni okkar í sjónvarpinu. sem Rannveig Guðmundsdóttir stjórnaði, en Þorsteinn var mikill aðdáandi Krumma.

Aðrar upplýsingar

Titill
Verkheiti: Íslenskur burstabær
Ártal
Aldur: 1968
Safnnúmer
Safnnúmer A: Þ-265
Stærð
22 x 60 x 24 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Burstabær