Íslensk sveitakirkja. Líkan

1950 - 1970
Varðveitt hjá
Þórbergssetur
Eftilíking íslenskrar sveitakirkju. Gluggar með 6 rúðum og boga að ofan eru á hliðum (4 á hvorri hlið) framhlið (3, einn hvoru megin við dyr og sá þriðji ofan við dyrnar), og í turni 3. Kirkjan er hvít en gluggar og þak græn. Haganlega smíðað líkan af Þorsteini Magnússuni (1899-1976) frá Lækjarhúsum í Suðursveit. Þorsteinn lenti í Sæbjargarslysinu 4. maí árið 1920. Þá var róið á opnum skipum til fiskjar frá Bjarnahraunssandi, sem að var aðalútróðrastaður sveitarinnar. Skipið fékk á sig stórsjó í lendingu, svo það steyptist fram yfir sig og flestir lentu í sjónum. Þorsteinn bjargaðist en faðir hans drukknaði við annan mann auk þess sem einn skipverja slasaðist illa. Þorsteinn flutti stuttu síðar til Reykjavíkur, vann þar við smíðar og viðgerðir m.a. á Kleppsspítalanum í Reykjavík. Kirkjan er gerð úr pappa sem er málaður. Inni í kirkjunni er ljós sem lýsir hana upp.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Íslensk sveitakirkja. Líkan
Ártal
Áætlaður aldur frá: 1950 - 1970
Safnnúmer
Safnnúmer A: Þ-170
Stærð
44 x 32 x 21 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kirkja, líkan