Krani, skráð e. hlutv.

Um 1870
Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "128. Lýsiskrani. Þetta er sagður fyrsti lýsiskraninn, sem hér var notaður. Einokunarverzlun Bryde (Austurbúðin) lét setja hann á lýsisgeyminn sinn um 1870, og var hún þá svo að segja einráð um öll lifrakaup og alla lýsisframleiðslu í kauptúninu. Þennan lýsiskrana átti síðast Pétur bóndi Lárusson á Búastöðum og gaf hann Byggðarsafninu árið 1938."

Aðrar upplýsingar

Ártal
Um 1870
Safnnúmer
128
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.