Klemma, skráð e. hlutv.

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "111. Klemma - eikarþvinga. Þær voru notaðar við smíði á súðbyrtum bátum, bæði opnum skipum og vélbátum, áður en skrúfuþvingurnar komu til sögunnar. Borðin voru sem sé klemmd saman með eikarþvingum þessum til þess að halda þeim föstum meðan þau voru seymd. Þessa borðaklemmu átti Jón formaður og smiður Ingimundarson í Mandal, enda merkið „Jón” á henni. Fóstursonur hans og dóttursonur, Jón Stefánsson í Mandal, gaf Byggðarsafninu gripinn."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
111
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.