Herðapúði Þórbergs Þórðarsonar
1970 - 1980
Varðveitt hjá
Þórbergssetur
Brúnleitt efni, mynstrað. Guðmundur Andri Thorsson gaf Þórbergssetri. Púðinn er núna á skrifborðsstól Þórbergs Þórðarsonar á sýningu í setrinu.
Frásögn Guðmundar Andra: Móðir mín, Margrét Indriðadóttir, fékk þennan fallega púða að gjöf frá Margréti konu Þórbergs en tilefnið þekki ég ekki, hafi það verið nokkuð. Þarna var kunningsskapur á milli og ég man eftir þeim Þórbergi og Margréti í boðum heima. Held að hún hafi verið annáluð fyrir púðana sína en aðrir kunna betri skil á því en ég
Aðrar upplýsingar
Titill
Titill: Herðapúði Þórbergs Þórðarsonar
Ártal
Áætlaður aldur frá: 1970 - 1980
Safnnúmer
Safnnúmer A: Þ-71
Stærð
38 x 24 x 10 cm
Staður
Jörð/Lóð: Staður: Hali, 781-Höfn í Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Herðapúði
