Fötin hans Krumma

1967 - 1969
Taska með fötum og fylgihlutum brúðunnar Krumma. Á botni töskunnar er hvítur límmiði sem á stendur „Mrs. Sigridur Hannesdottir, Reynimel 68, 107 Reykjavik, Iceland“. Sigríður Hannesdóttir talaði fyrir og stýrði brúðunni Krumma. Taskan er að hluta til klædd með brúnu leðurlíki. Handfangið sem líklega hefur verið farið að slitna er vafið með brúnu límmbandi. Á annarri hlið töskunnar er límmiði sem á stendur „United States customs service, Inspected baggage, 016532G“. Á límmiðan hefur verið krotað með penna eða blýanti. Líklega upphafsstafir einhvers. Taskan er úr við sem búið er að hylja með pappír og leðurlíki. Að innan er hún klædd pappír með striga munstri. Taskan er nokkuð rispuð. Taskan fylgir leikbrúðunni Krumma, úr sjónvarpsmyndaflokknum „Rannveig og Krummi“ sem sýndir voru í barnaþættinum Stundinni okkar í Sjónvarpinu frá febrúar 1967 til 1969. Þar spjallaði Rannveig Jóhannsdóttir við Krumma sem Sigríður Hannesdóttir talaði fyrir og stýrði. Höfundur og leikstjóri þáttanna var Hinrik Bjarnason. Krummi sjálfur er skráður á Þjms. 2022-75-1. Rannveig og Krummi urðu feikivinsæl og fengu mikið af póstsendingum. Í töskunni eru hluti þeirra gjafa sem Rannveig og Krummi fengu. Alls kyns fatnaður og fylgihlutir, þar á meðal húfur, treflar, öskupoki, , eyrnaskjól, ýmis útsaumsstykki, lítið trésverð, skikkjur og fleira. Á tveimur útsaumsstykkjanna er heftað lítið blað með nafni og heimilisfangi þess sem gaf. Á þeim standa nöfnin: Halla Þórhallsdóttir, Guðlaugsstöðum, Garði. og Anna Gunnlaug Egilsd. Kolbeinsstöðum 2, Seltjarnarnesi. Upplýsingar frá Hinriki Bjarnasyni (gefanda) 31.08.2022: Sjónvarpsmyndaflokkurinn „Rannveig og Krummi“ var leikbrúðuþáttur. Þar spjallaði Rannveig Jóhannsdóttir við leikbrúðuna Krumma, sem Sigríður Hannesdóttir talaði fyrir og stýrði. Þátturinn var hluti af barnaþætti Sjónvarpsins, Stundinni okkar, sem fyrst var sendur út á jóladag 1966, en síðan á hverjum sunnudegi og er nú, 2022, sá dagskrárliður sjónvarpsins sem lengst hefur haldið velli með upprunalegu nafni, að fréttum undanskildum. Fyrsti þáttur af „Rannveig og Krummi“ var sendur út 26. febrúar 1967. Þeir voru síðan á dagskrá sem hluti af Stundinni okkar, venjulega hálfsmánaðarlega, allt fram til 1969. Þættirnir urðu alls um 30 talsins, 15 – 20 mínútur hver. Í þáttunum spjölluðu þau saman, Rannveig og Krummi, ræddu um hvað eina sem börnum og hröfnum viðkom í dagsins önn og sungu viðeigandi söngva í hverjum þætti, oftar en ekki frumsamda texta höfundar við alkunn lög. „Rannveig og Krummi“ voru fyrstu íslensku leikbrúðuþættirnir í Ríkisútvarpinu-Sjónvarpi. Í raun voru þeir líka fyrsti innlendi, leikni framhaldsmyndaflokkurinn í íslensku sjónvarpi. Höfundur og leikstjóri þáttanna var Hinrik Bjarnason, fyrsti umsjónarmaður Stundarinnar okkar. Þáttunum var ætlað að vera uppbyggilegt skemmtiefni fyrir börn, reyndar fyrir hverja þá, er á horfðu og hlýddu, og voru gerðir með þeim hætti, að börn gætu brugðist við og haft samband við þau skötuhjúin, Rannveigu og Krumma, varðandi eitt og annað er fram kom þeirra á milli. Skemmst er frá því að segja að „Rannveig og Krummi“ urðu feikivinsæl, fljótlega skiptu póstsendingar til þeirra hundruðum í viku hverri og urðu flestar um 800 – 1000. Með bréfunum fylgdu ýmsar velmeintar leiðbeiningar og fyrirspurnir, teikningar og allskonar fatnaður á Krumma, einkum prjónles, og var öllum bréfum svarað með kortum til sendenda. Bréfin og teikningarnar hafa að mestu orðið fyrir barðinu á tímans tönn, en nokkuð er eftir af ýmiss konar flíkum, Krumma til skjóls og útlitsbóta. Það má fyrst og fremst þakka hirðusemi og áhuga Sigríðar Hannesdóttur. Um uppruna Krumma er það að segja, að hann er fremur frumstæð handbrúða, sem Hinrik Bjarnasyni áskotnaðist, líklega síðla hausts 1966, og sýndist geta fallið að hugmyndum hans um innlend efnisatriði í fyrirhuguðum þáttum fyrir börn í dagskrá hins upprennandi, íslenska sjónvarps. Hinrik fékk síðan til samstarfs tvær vinkonur sínar, Rannveigu, sem þrátt fyrir ungan aldur var margreynd listakona úr leik – og tónlistarlífi í skólum og unglingastarfi, og Sigríði, þekkta leikkonu úr leiklistarlífi þess tíma, ekki síst í revíum og skemmtidagskrám, auk starfa að brúðuleikhúsi með frumkvöðlinum Jóni Guðmundssyni og fleirum. Allir voru þættirnir „Rannveig og Krummi“ unnir eftir nákvæmum handritum og komu fullæfðir til upptöku í hvert sinn. Handrit þeirra flestra er nú að finna í Þjóðskjalasafni Íslands.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Fötin hans Krumma
Ártal
1967 - 1969
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-75-2
Stærð
25 x 30,3 x 15 cm
Staður
Staður: Ríkisútvarpið, Efstaleiti 1, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Taska, skráð e. hlutv.
Efnisorð:
Fatnaður
Efnisorð:
Trefill
Efnisorð:
Húfa, sem höfuðfat
Efnisorð:
Öskupoki
Efnisorð:
Svunta

Upprunastaður

64°7'31.4"N 21°53'28.7"W