Hlunnur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "95. Hvalbeinshlunnur, merktur K. E. Þessi hlunnur er frá Mýrdælingsútgerðinni, sem Jón Ingimundarson í Mandal annaðist. Var hann formaður á áttæringnum Mýrdæling, eftir að Þorsteinn Jónsson, formaður og alþingismaður Eyjanna, féll frá árið 1886. Þá segir sagan, að einhver hásetinn á Mýrdæling hafi merkt hlunnann Kristínu Einarsdóttur í Nýjabæ, ekkju Þorsteins Jónssonar, bónda hennar, formanns og alþingismanns. Jón Stefánsson í Mandal, dóttursonur Jóns Ingimundarsonar, gaf Byggðarsafninu hlunnann."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
95
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hlunnur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.