Fiskþvottur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "64. Fiskþvottarstampur. Þessi er næsta óvenjustór, smíðaður úr eikartunnustöfum, olíutunnustöfum. Stamp þennan eða fiskþvottarkerald átti frú Guðrún Runólfsdóttir á Sveinsstöðum við Njarðarstíg (nr. 6). Hún rak hér útgerð um árabil og ræktaði jafnframt tún hér á Heimaey og stundaði heyskap. Hún var móðir Ársæls Sveinssonar útgerðarmanns að Fögrubrekku. Fengur er Byggðarsafninu að eiga þennan hlut til minja um atorku frú Guðrúnar á Sveinsstöðum. Gjöf frá sonarsonum hennar til Byggðarsafnsins."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
64
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.