Skrautaskur

1895 - 1924
Skrautaskur útskorinn af Stefáni Eiríkssyni (1862-1924). Askurinn er líklega úr birki og hefur verið ætlaður til skrauts, en ekki til matar enda mjög frábrugðin mataröskum. Hann er renndur og útskorinn með eyrum á. Lokið er hvelft og útskorið, og er á svartur hnúður. Innan á lokinu eru skorið út: „St.E." Árið 2024 tók Þjóðminjasafnið við nokkrum gripum úr eigu Briem ættarinnar til varðveislu. Gripir sem allir voru um tíma í eigu Gunnlaugs E. Briem (f. 1922, d. 2014). Það var systir gefanda, Áslaug Briem sem afhenti þá gripi. Þessi askur var einnig áður í eigu Gunnlaugs. Með sumum gripanna sem safnið tók við árið 2024 fylgdi saga þeirra sem Gunnlaugur hafði skráð og á það einnig við um þennan ask en bréf með upplýsinum um askinn skráð af honum fylgdi með þegar askurinn var afhentur safninu árið 2025. Gripirnir sem afhentir voru árið 2024 eru allir skráðir undir númerinu Þjms. 2024-1. Með askinum fylgdi handskrifað bréf með upplýsingum um askinn. Upplýsingarnar skráði Gunnlaugur E. Briem (f. 1922, d. 2014), faðir gefanda: Askur skorinn út af Stefáni Eiríkssyni tréskera (1863-1924) Hæð 14 cm, breidd á loki 13 cm. Handföng eru á hvorri hlið. Útskurður á askinum er með fléttumynsti: 4 reitir á hvorri hlið og 4 á loki. Tvær svartar rendur eru á askinum efst og neðst. Neðan á honum eru 4 bogar hvoru megin. Askurinn er líklega úr birki. Hann var í eigu foreldra minna Kristínar og Kristins Briem Sauðárkróki, en eigi er vitað hvaðan hann kom til þeirra. Sprunga var á honum og hann farinn að losna á límingu, er ég eignaðist hann eftir lát föður míns 1970. Askurinn var sagður útskorinn af Ríkharði Jónssyni (1888, 1977), myndlistamanni, Ég fór með askinn til Ríkharðs og sýndi honum hann. Sagðist hann hafa skorið dýpri skurð en er á askinum og mundi hann vera eftir Stefán Eiríksson, tréskurðarmann og gott skurðverk. Ríkharður gerði við askinn fyrir mig og skar út stafina St.E. [stendur S.tE.] innan á lokið. Árið 1922 birti tímaritið Arkir (5. tbl.), grein um Stefán Eiríksson þar sem fram kemur að á þeim tíma hafi 7 nemendur útskrifast hjá honum í tréskurði og að þar á meðal sé Ríkarður Jónsson. Nemandi Stefáns Eiríkssonar sem talið var að hefði skorið út askinn sem hér um ræðir en er verk Stefáns. Einnig var birt grein um Stefán Eiríksson í 12. tbl. af Óðni árið 1923. Í safneign Þjóðminjasafns Íslands eru varðveittir fleiri gripir eftir Stefán Eiríksson. Þar á meðal eru tveir skrautaskar: L-12 og L-13.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Skrautaskur
Ártal
1895 - 1924
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2025-3
Stærð
14 x 22 x 13 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Askur