Avomælir

1950
Avomælir í brúnni leðurtösku með handfangi. Á honum stendur "Universal Avometer". Þar fyrir neðan eru tveir snúningstappar. Gluggi með kvörðum. Þetta er fjölskalamælir, hægt að mæli Amper (straum), Volt (spennu) og Ohm (viðnám). Á honum eru fjögur úttök fyrir mismunandi straum. Var á ritsímasýningu Tækniminjasafnsins í gömlu símstöðinni á Seyðisfirði. Tvær snúrur fylgja með, önnur rauð og hin svört. Aftan á mælinum eru leiðbeiningar. Þar má sjá að þetta er MODEL 9 MK 2.

Aðrar upplýsingar

Framleiðandi: Avo Ltd.
Ártal
Áætlaður aldur frá: 1950
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2026-58
Stærð
22 x 21 x 13 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Avomælir