Sængurfatasett

a) Sængurverið er úr hvítu lérefti. Á efri hluta versins eru ísaumuð tvö blóm með flatsaumi og undirlagðir grunnar. Fyrir miðju er fangamark Sigríðar þ.e. S Ó. saumað með flatsaumi og kontórsting (leggsaumi). Blómin og fangamarkið römmuð inn með enskum saumi. Fyrir neðan útsauminn er 5. cm. breitt lek. Stærð sængurversisn er 160 x120 cm. b) Koddaverið er í stíl við sængurverið. Þar er saumað eitt blóm og enskur saumur í kring í annað hornið en í hinu horninu eru stafirnir S.Ó. Stærð koddaversins er 50 x 40 cm. Gefandi er Sigríður M. Sigurðardóttir, Seljahlíð 5 B, 603 Akureyri. Unnið af Sigríði Margréti Ólafsdóttur (1892-1960), frá Búlandi í Arnarneshreppi, sem var amma gefanda. Var mjög góð vinkona Huldu Á Stefánsdóttur, fyrrum skólastýru við Kvennaskólann á Blönduósi.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Sængurfatasett
Safnnúmer
Safnnúmer A: HIS-2776 a og b
Stærð
160 x 140 cm 40 x 60 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Koddaver
Efnisorð:
Sængurver
Efnisorð