Prufurenningur

Prufurenningur sem Stefanía Sigríður Stefánsdóttir vann (1857-1893). Á honum er sýndur ýmiss konar útsaumur s.s. flatsaumur, glitsaumur (gobelín), augnsaumur, enskur og franskur saumur, hedebø, blómstursaumur, listsaumur, feneyjarsaumur (venesíenskur saumur). Þá eru handsaumuð hnappagöt (kappmelluð), bendlabönd saumuð niður og húllfaldur. Gefandi er Stefanía Hrólfsdóttir, (f. 1955), Smyrlaheiði 13, 810 Hveragerði. Stefanía Sigríður var langamma hennar og bjó að Felli í Kollafirði á Ströndum, ásamt manni sínum Arnóri Árnasyni frá Höfnum á Skaga. Bæði hjónin stunduðu kennslu ungmenna á heimili sínu og Stefanía kenndi stúlkum m.a. handavinnu og stafsetningu. Nokkuð algengt var að ungar stúlkur sem lærðu handíð hvort sem var á heimilum áður fyrr eða síðar á húsmæðraskólum voru látnar búa til svokallaða prufurenninga með sýnishorni af ýmiss konar útsaumi, vefnaði, hnappagötum, rykkingum, hvernig ætti að sauma bót á flík ofl. Þá var líka algengt að viðkomandi kennslukona vann fyrirmynd af slíkum prufurenningi sem stúlkurnar gátu farið eftir. Mjög sennilegt er að þessi prufurenningur hafi verið notaður sem kennslugagn enda óvenjulegt hve margskonar útsaumsaðferðir eru þar unnar.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Prufurenningur
Safnnúmer
Safnnúmer A: HIS-2767
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Renningur