Bitafjöl

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"28. Bitafjöl úr hinu kunna aflaskipi í Eyjum og hákarlaskipi, áttæringnum Frið, sem Gísli verzlunarstjóri Engilbertsson við Júlíushaabverzlun átti hluta í og gerði út ýmist á þorkveiðar eða hákarlaveiðar á síðari hluta síðustu aldar. Við rannsókn Lúðvíks Kristjánssonar, rithöfundar, hefur komið í ljós, að þetta er yngsta bitafjölin, sem nú er á minjasöfnum í landinu. Á bitafjölinni gefur að lesa fyrirbæn, svo sem venja var til á bitafjölum:
Frið leiði friður, farsæld og gæfa, haldist í höndur höpp úr sæ fanga, ráð, dáð og dugur drottins í nafni. (1906). Bitafjalir voru oftast festar framan á þóftuna eða bitann milli skutar og austursrúms í opnu skipunum. Þar blöstu þær við skipshöfn allri. Frú Katrín Gísladóttir verzlunarstjóra Engilbertssonar, gaf Byggðarsafninu bitafjöl þessa."
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
28
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bitafjöl
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.