Farsæll

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "7. Árabátur með Landeyjalagi. Það bátslag var vel þekkt í Eyjum á umliðinni öld a. m. k., með því að nokkur skip Eyjamanna og þau nafnkunnustu, svo sem Gideon, Trú og Ísak voru smíðuð á Ljótarstöðum í Landeyj um. Upprunalega var bátur þessi fjórróinn, en síðar sett á hann þriðja ræðisparið. Þessi stærð báta er talin hafa verið algeng í Landeyjum og í Eyjum á sumarbátum svo kölluðum og voru þeir kallaðir jul hér í Eyjum a. m. k., meðan þeir voru aðeins fjórrónir.Tómas bóndi Jónsson á Arnarhóli í Landeyjum smíðaði bát þennan árið 1872 og er hann því réttra 100 ára. Hann smíðaði einnig naglana í byrðinginn og allt annað, sem, bátsins er. Báturinn var upphaflega smíðaður handa Hvolshreppingum eða fyrir þá. Þess vegna var hann um árabil kallaður Hvolshreppsbáturinn. Hvolshreppingar stunduðu sjó á honum frá Landeyjasandi, og lágu þeir þá oftast við í Miðkoti eða á Arnarhóli. Um 1920 hlaut báturinn fast nafn nafnið Farsæll sökum þess, hversu farsæll báturinn hafði alltaf reynzt. Aldrei höfðu slys eða meiðsli átt sér stað á honum við útgerð hans. Fengsæll hafði hann jafnan reynzt og var það alltaf. Þessir menn voru formenn á Farsæl:1) Einar bóndi í Garðsaukahjáleigu í Hvolhreppi. 2) Kristján bóndi á Árgilsstöðum í Hvolhreppi. 3) Ísak bóndi Sigurðsson í Miðkoti. Ísak eignaðist bátinn, þegar Hvolhreppingar hættu að nota hann. Síðasti eigandi bátsins var Jón bóndi Tómasson í Hvítanesi. Hann var tengdasonur Ísaks Sigurðssonar. Jón bóndi fékk sér formann fyrir bátinn, Einar bónda Gíslason í VesturFíflholtshjáleigu. Aldrei voru notuð önnur veiðarfæri á bátnum en handfæri. Árið 1930 var síðast stundaður sjór á bátnum, og var Jón bóndi Tómasson formaður á bátnum síðustu fimm árin, sem hann var notaður. Bátnum var jafnan vel við haldið, tjargaður og að honum dyttað á hverju hausti. Báturinn var bæði notaður á vetrar og vorvertíðum. Stundum var sóttur sjór á honum suður undir Þrídranga. Bátnum var oftast lent vestan við Afallsósa. Byggðarsafnið keypti bátinn, þar sem hann hvolfdi í Hvítanesi í Landeyjum, lét flytja hann á bifreið til Reykjavíkur og svo þaðan með v/b Skaftfelling til Eyja. Hingað kominn kostaði báturinn kr. 900,00. Það var árið 1956. Síðan lét Byggðarsafnið gera mikið við bátinn, m. a. setja í hann ný bönd. Smíði þessi átti sér stað á efsta gangi Gagnfræðaskólabyggingarinnar sumarið 1956. Eggert Ólafsson skipasmíðameistari framkvæmdi það verk. Síðan var báturinn geymdur á efsta gangi Gagnfræðaskólabyggingarinnar í 13 ár, þiljaður þar af innst í ganginum. Einar J. Gíslason verkstjóri frá Arnarhóli hér í Eyjum greiddi fyrir kaupum á bátnum handa Byggðarsafninu. Helgi Benediktsson útgerðarmaður lét flytja hann til Eyja Byggðarsafninu að kostnaðarlausu. Það gerði v/s Skaftfellingur, sem þá flutti vörur milli Reykjavíkur og Eyja."

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Farsæll
Safnnúmer
7
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Árabátur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.