Munir

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Silfurnæla, kringlótt. Nælan er talsvert máð og virkar gömul. Í miðju hringsins sér móta fyrir manneskja sem stendur undir boga. Til beggja hliða eru súlur eða stöplar og jurtaskreyti. Báðar hliðar eru líkar en þó ekki speglaðar. Á nokkrum stöðum í bakgrunni myndarinnar eru göt í gegnum næluna. Á bakhlið er prjónn til að festa næluna við flík. Á bakhlið er grafið „830S" og vísar það til hreinleika silfursins.
Skjöldurinn á beltispari númer Þjms. 3610 er með sömu mynd og nælan. Í skráningu hans segir að myndin sýni engil og til beggja hliða við hann séu súlur, sem munu þó eiga að vera upphá blómker, því að blómin sýnast standa uppúr. Að öðru leyti sé skjöldurinn gagnskorinn og með blómum og blöðum. Umhverfis er smágerður krákustígur.
Nælan var geymd í kistli sem Þjóðminjasafnið tók til varðveislu árið 2025 ásamt tveimur öðrum nælum sem í honum voru. Kistillinn var gerður af Guðmundi Magnússyni (f. 1818, d. 1914) í Helludal í Biskupstungum. Hann var mikill hagleikssmiður og jafnvígur á tré og málm og jafnvel saumaskap. Síðustu æviár hans bjó Guðmundur hjá Steinunni Magnúsdótttur (f.1875 d. 1959) sonardóttur sinni í Helludal og sennilega hefur kistill þessi komið í hennar eigu eftir hans dag. Síðustu æviár sín bjó hún hjá syni sínum Guðmundi Tómassyni (f. 1900, d. 1984 ) og konu hans Steinunni Gísladóttur (f. 1901, d. 1984) að Steinum í Grindavík og hefur þá kistillinn fylgt henni þangað. Eftir lát þeirra hjóna hjóna kom svo kistillinn í vörslu Steinunnar (f. 1930) dóttur þeirra sem gaf kistillinn ásamt þremur nælum sem í honum voru er hún tók við honum.
Kistillinn og hinar tvær nælurnar eru skráður undir númerinu Þjms. 2025-11.
Í safneign Þjóðminjasafns Íslands eru varðveitt beltispör (Þjms. 2008-5-26 og Þjms. 3610) með skjöldum sem hafa sömu mynd og nælan
Aðrar upplýsingar
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2025-11-3
Stærð
3 x 2,2 x 0,6 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti





