Kistill, + hlutv.

1873
Kistill, koparlagður. Á loki viðarkistilsins eru tvær stórar sprungur í viðnum. Kistillinn er skreyttur koparþynnum, flestir kantar kistilsins eru lagðir koparþynnum en á nokkrum stöðum hefur koparinn dottið af eða brotnað að hluta. Á kanti hægra megin á framhlið hefur hluti af koparnum brotnað af og það sem eftir er bognað. Lok kistilsins er skreytt tígullaga koparþynnum (ein þeirra hefur dottið af) meðfram öllum hliðum. Á hornunum eru spaðalaga form. Þetta skreyti ásamt köntum og koparlengjum mynda ramma á lokinu. Á miðju lokinu er minni rammi úr kopar og innan hans er fangamarkið „SGDA" einnig úr kopar. Á framhlið kistilsins fyrir miðju er ártalið „1873" lagt kopar sem umlukið er jurtaskreyti. Kistillinn hefur verið lakkaður og á framhlið má sjá lakktauma. Fyrir ofan ártalið er lítið skráargat, en lykillinn hefur ekki varðveist. Þynnurnar eru allar negldar í kistilinn. Upplýsingar frá gefanda: Kistillinn var gerður af Guðmundi Magnússyni (f. 1818, d. 1914) í Helludal í Biskupstungum. Hann var mikill hagleikssmiður og jafnvígur á tré og málm og jafnvel saumaskap. Síðustu æviár hans bjó Guðmundur hjá Steinunni Magnúsdótttur (f.1875 d. 1959) sonardóttur sinni í Helludal og sennilega hefur kistill þessi komið í hennar eigu eftir hans dag. Síðustu æviár sín bjó hún hjá syni sínum Guðmundi Tómassyni (f. 1900, d. 1984 ) og konu hans Steinunni Gísladóttur (f. 1901, d. 1984) að Steinum í Grindavík og hefur þá kistillinn fylgt henni þangað. Eftir lát þeirra hjóna hjóna kom svo kistillinn í vörslu Steinunnar (f. 1930) dóttur þeirra sem gaf kistillinn ásamt þremur nælum sem í honum voru er hún tók við honum til varðveislu í safneign Þjóðminjasafns Íslands árið 2025. Í safneign Þjóðminjasafns Íslands eru varðveittir aðrir gripir eftir Guðmund Magnússon: Þjms. 5783 strikmál Þjms. 5784 sirkill Þjms. 9230 svipa

Aðrar upplýsingar

Ártal
1873
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2025-11-1
Stærð
10,7 x 23 x 13,5 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kistill, + hlutv.
Myndefni:
Fangamark
Skreyti:
Tígull