Skólahandavinna Melaskóli
1970

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Handavinnupoki.Sjá ljósmynd.
Efni: Bómull.
Tækni: Handsaumur og útsaumur.
Handavinnupoki. Unninn í 9 ára bekk í Melaskóla veturinn 1969-1970. Meðfram báðum hliðum pokans er munsturbekkur. Útsaumsspor: Ídregið tvöfalt þræðispor, lykkjuspor og greinaspor (Y spor). Á bakhlið pokans er fangamarkið GJB og ártalið 1970, saumað með krosssaumi. Fyrir neðan fangamarkið er mjór munsturbekkur með demantspori. Á framhlið pokans er krosssaumsmynd (kona og stelpa). Fyrir neðan myndina er munsturbekkur eins og á bakhliðinni. Pokinn er dreginn saman að ofan með snúinni snúru. Stærð: 28.5 x 31.5 sm. Samkvæmt námskrá frá 1960.
b) Mittissvunta.
Efni: Bómull.
Tækni: Vélsaumur, handsaumur og úsaumur.
Mittissvunta. Skylduvinna í 11 ára bekk, unnin veturinn 1971-1972 í Melaskóla. Vélsaumur, handsaumur og útsaumur. Neðan á svuntunni er breiður munsturbekkur og utanáliggjandi vasi hægra megin. Útsaumsbekkur að neðan: Oddaspor í miðju, ídregið oddaspor og demantspor sitt hvoru megin. Mjór munsturbekkur á vasa. Útsaumsspor: Oddaspor, ídregið oddaspor (tvisvar) og demantspor. Einnig bókstafurinn G saumaður með krosssaumi og tvær lóðréttar útsaumslínur sitt hvoru megin við stafinn saumaðar með tvöföldu ídregnu þræðispori. Svuntan er rykkt undir streng. Böndin eru sniðin einföld með tvíbrotnum faldi á hliðum. Faldurinn er saumaður í saumavél.
Samkvæmt námskrá frá 1960.
c) Matreiðslukappi.
Efni: Bómull.
Tækni: Vélsaumur, handsaumur og útsaumur.
Matreiðslukappi. Skylduvinna í 11 ára bekk, unninn veturinn 1971-1972 í Melaskóla. Höfuðbúnaður til að nota við eldhússtörf. Formið er þríhyrningslagað. Vélsaumur, handsaumur og útsaumur. Gengið frá hliðunum með mjóum tvíbrotnum faldi sem er saumaður niður í höndum. Tvöfaldur listi úr köflóttu efni (handavinnupokaefni) er saumaður við kappann að framan. Á miðjum lista er saumað fangamarkið GB með krosssaumi. Í brún listans er saumuð ein lína með tunguspori (kappmelluspor). Á öðrum enda listans er handgerð hnesla og tautala á hinum endanum.
Svuntan og kappinn voru unnin í 11 ára bekk til þess að nota í heimilisfræði sem kennd var í 12 ára bekk. Samkvæmt námskrá frá 1960.
d) Koddaver.
Efni: Bómull.
Tækni: Vélsaumur, handsaumur, útsaumur og hekl.
Koddaver, skylduvinna í 10 ára bekk. Unnið veturinn 1970-1971 í Melaskóla. Verið er saumað saman í saumavél. Saumuð er lína með beinu vélsaumsspori á réttunni, þremur sm. frá brún sem myndar kant á þrjá vegu á koddaverinu. Hekluð blúnda er handsaumuð í brún koddaversins (hekluð blúnda var skylduvinna í 10 ára bekk). Útsaumur framan á koddaveri: Munstur í gulum litum, bókstafurinn G í miðju munstri. Saumað með leggsaumi (kontorstingur, varpleggur), og flatsaumi. Brotið er inn af faldinum að neðan (jaðar) og stungið tæpt í brún í saumavél. Tvö handgerð hnappagöt og tvær tautölur. Stærð: 58 x 43 sm. Samkvæmt námskrá frá 1960.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Vigdís Pálsdóttir
Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, Hlutinn gerði
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir, Greining
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, Hlutinn gerði
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir, Greining
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Skólahandavinna Melaskóli
Ártal
Aldur: 1970
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-34-51
Staður
Upprunalegur staður: Staður: Melaskóli, Hagamelur 1, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna
Efnisorð: Handavinnupoki
Efnisorð: Eldhússvunta
Efnisorð: Matreiðslukappi
Efnisorð: Koddaver
Efnisorð: Handavinnupoki
Efnisorð: Eldhússvunta
Efnisorð: Matreiðslukappi
Efnisorð: Koddaver
Upprunastaður
64°8'33.7"N 21°57'25.3"W



