Lýðveldishátíðarkortin

1944
Lýðveldishátíðarkortin, 10 stk. Lýðveldishátíðarkortin, 10 alls, í umslagi. Kortin eru prentuð í litum á hvítan pappa, l. um 17 cm, br. um 12 cm, umslagið, úr hvítum pappa, er um 17,5 cm á l., br. rúml. 12 cm, þ. um 0,4 cm, á framhlið þess er áletrun í umgerð, má lesa: „Lýðveldishátíðarkortin/Stefán Jónsson teiknaði og gaf út“, prentað er með bláum lit og rauðum. Sbr. n. nr. á eftir. Stefán Jónsson teiknaði og gaf út kortin. Frá þeim tæpu tveimur áratugum sem Stefán vann sem teiknari liggur töluvert eftir hann af þekktum verkum. Hann bar sigur úr býtum í samkeppnum um merki Lýðveldishátíðarinnar 1944, merki Sjálfstæðisflokksins, Landbúnaðarsýningarinnar 1947, merki Þjóðleikhússins, Krabbameinsfélagsins og Áburðarverksmiðju Reykjavíkurborgar. Póstkortin voru í eigu Guðbjargar Elínborgar Þórðardóttur Ferrier (f. 1908, d. 1983) sem búsett var í Englandi og var einn stofnenda Íslendingafélagsins í London. Ættingjar Guðbjargar buðu Þjóðminjasafni Íslands að taka við gripum úr eigu hennar til varðveislu árið 2022. Auk bæklingsins var einnig tekið við alþingishátíðardúk (2022-84-1)og Lýðveldishátíðarkortum (2022-84-3). Guðbjörg Elínborg Þórðardóttir fæddist árið 1908 á Ísafirði, foreldrar hennar voru Friðrika Engilbertsdóttur (f. 1870, d. 1943) og Þórður Bjarnason. Móðir hennar hafði flust til Ísafjarðar til að vinna í fiski. Þar komst hún í kynni við Þórð, sjómann fra Akranesi og í kjölfarið áttu þau Elínborgu. Þórður var þegar giftur og átti fjölskyldu á Akranesi og var einungis á Ísafirði á vertíðum. Guðbjörg var því alin upp af einstæðri móður. Að loknu námi hjá Elínborgu árið 1922 fluttu mæðgurnar til Reykjavíkur og Elínborg fékk vinnu við afgreiðslu í Verzluninni Edinborg. Sú verslun var í eigu Ásgeirs Sigurðssonar sem einnig var ræðismaður Bretlands á Íslandi. Hún stóð sig vel í starfi og fluttist nokkru síðar yfir á skrifstofu Ásgeirs sem virkaði eins og ræðismannaskrifstofa Bretlands í Reykavík. Elínborg var í kjölfarið send til Manchester til að læra vélritun og hraðritun árið 1928, eftir að hafa numið ensku veturinn áður. Á ræðismannahluta skrifstofunnar túlkaði Elínborg fyrir Breta sem tóku þátt í uppbyggingu Sænsk-íslenska Frystishússins og í gegnum þá vinnu kynnstis hún framtíðar eiginmanni sínum James Ferrier. Þau fluttu síðan til Bretlands og komu sér fyrir í suðausturhluta London, Forest Hill. Heimili þeirra átti eftir að verða vinsæll viðkomustaður Íslendinga á ferð. Hún var einn af stofnendum Íslendingafélagsins í London og síðar forseti félagsins og var sæmd riddarakrossinum fyrir þau störf árið 1970. í safneign Þjóðminjasafns íslands er einnig varðveittur plastdúkur númer 2018-61-1 úr eigu Elínborgar.

Aðrar upplýsingar

Titill
Lýðveldishátíðarkortin
Ártal
1944
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-84-3
Stærð
22 x 12,7 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti