Alþingishátíðardúkur
1930

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Alþingishátíðardúkur, hvítur. Framleiddur í tilefni af Alþingishátíðinni 1930. Á miðjum dúknum er skjaldarmerki Íslands ásamt mynd af Öxarárfossi með drekaskrauti í kring, í forn-norrænum stíl. Áletrun yfir: ALÞINGI 930:1930. Áletrun undir: MINNI. ÍSLANDS. Meðfram hliðum dúksins er munsturbekkur með eikarlaufum og akörnum. Nokkrir ljósir blettir eru á dúknum.
Dúkurinn er minjagripur og var framleiddur í nokkrum stærðum og litum eins og sjá má í auglýsingu frá Verslun Egils Jacobsen sem birt var í Morgunblaðinu árið 1930 (sjá mynd af auglýsingu).
Dúkurinn var í eigu Guðbjargar Elínborgar Þórðardóttur Ferrier (f. 1908, d. 1983) sem búsett var í Englandi og var einn stofnenda Íslendingafélagsins í London. Ættingjar Guðbjargar buðu Þjóðminjasafni Íslands að taka við dúknum til varðveislu árið 2022. Dúknum fylgdu bæklingur(2022-84-1) frá árinu 1929 með upplýsingum um hátíðina 1930 og lýðveldishátíðarkort (2022-84-3).
Gjöfinni fylgdi handskrifað bréf frá syni Guðbjargar:
Dear Sirs,
I would like to present you with this splendid tablecloth that was given to my mother in 1944.
As my mother Guðbjörg Elinborg Þorðadottir Ferrier has long since passed away. I would like to give it to you to preserve for the people of Iceland.
Kind regards. Long live Iceland!!!
James Arthur Ferrier
Guðbjörg Elínborg Þórðardóttir fæddist árið 1908 á Ísafirði, foreldrar hennar voru Friðrika Engilbertsdóttur (f. 1870, d. 1943) og Þórður Bjarnason. Móðir hennar hafði flust til Ísafjarðar til að vinna í fiski. Á Ísafirði komst hún í kynni við Þórð, sjómann frá Akranesi og í kjölfarið áttu þau Elínborgu. Þórður var þegar giftur og átti fjölskyldu á Akranesi og var einungis á Ísafirði á vertíðum. Guðbjörg var því alin upp af einstæðri móður.
Að loknu námi hjá Elínborgu árið 1922 fluttu mæðgurnar til Reykjavíkur þar sem Elínborg fékk vinnu við afgreiðslu í Verzluninni Edinborg. Sú verslun var í eigu Ásgeirs Sigurðssonar sem einnig var ræðismaður Bretlands á Íslandi. Hún stóð sig vel í starfi og fluttist nokkru síðar yfir á skrifstofu Ásgeirs. Elínborg var í kjölfarið send til Manchester til að læra vélritun og hraðritun árið 1928, eftir að hafa numið ensku veturinn áður. Á ræðismannahluta skrifstofunnar túlkaði Elínborg fyrir Breta sem tóku þátt í uppbyggingu Sænsk-íslenska Frystishússins og í gegnum þá vinnu kynntist hún framtíðar eiginmanni sínum James Ferrier. Þau fluttu síðan til Bretlands og komu sér fyrir í suðausturhluta London, Forest Hill. Heimili þeirra átti eftir að verða vinsæll viðkomustaður Íslendinga á ferð. Elínborg var einn af stofnendum Íslendingafélagsins í London og síðar forseti félagsins og var sæmd riddarakrossinum fyrir þau störf árið 1970.
Í safneign Þjóðminjasafns Íslands er einnig varðveittur plastdúkur Þjms. 2018-61-1 úr eigu Elínborgar.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1930
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-84-1
Stærð
155 x 122 cm
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Alþingishátíðardúkur
Efnisorð: Dúkur, af matarborði
Myndefni: Skjaldarmerki, + hlutv.
Myndefni: Foss
Efnisorð: Dúkur, af matarborði
Myndefni: Skjaldarmerki, + hlutv.
Myndefni: Foss










