Snúrur og hnýtingar

a)  Mappa. Snúrur og bönd. Efni: Fjölbreyttar efnisgerðir. Tækni: Snúrugerð. Bandagerð. Skriflegar leiðbeiningar. Vinnuteikningar. Tilraunavinna Vigdísar á meðan hún var starfandi kennari við Handavinnudeild KÍ og KHÍ 1964-1989. Snúrur og bönd. Ýmsar aðferðir. Hnýtingar (macramé), ýmsar aðferðir í hnútagerð. Hnýtingar voru mjög vinsælar upp úr 1970 og fram yfir 1980. Haldin voru fjölmörg námskeið í hinum ýmsu aðferðum hnútagerðar. Verkefnin voru fjölbreytt. Dæmi: Gluggahengi, blómahengi, lampaskermar, myndir, veggskraut, töskur, belti, skartgripir o.fl. Námskeið í hnýtingum voru mjög vinsæl handverksnámskeið á þessum tíma og sumir töluðu um hnýtingaæði. Talið upp í sömu röð og er í möppu 1. Fléttað með sjö þráðum. Fjögur sýnishorn og vinnuteikning. 2. Fléttað með fjórum þráðum. Sex sýnishorn og vinnuteikning. 3. Tólftottaband. Þrjú sýnishorn ásamt skriflegum leiðbeiningum. 4. Fléttað með níu þráðum. Þrjú sýnishorn. Skriflegar leiðbeiningar og vinnuteikning. 5. Krílað með sjö þráðum. Þrjú sýnishorn ásamt skriflegum leiðbeiningum. 6. Starkóngur. Þrjú sýnishorn og vinnuteikningar. 7. Krílað með fjórum þráðum. Fjögur sýnishorn, skriflegar leiðbeiningar og vinnuteikning. 8. Handhekluð snúra. Þrjár snúrur ásamt vinnuteikningu. 9. Fótofið band. Þrjú sýnishorn og skriflegar leiðbeiningar. 10. Skriflegar leiðbeiningar ásamt vinnuteikningu. Ljósrit. 11. Íslensk gjarðabrugðning. Tvö sýnishorn. Skriflegar leiðbeiningar og vinnuteikningar. 12. Fléttað með þrettán þráðum. Tvö sýnishorn. Skriflegar leiðbeiningar. 13. “Án heitis”. Þrjú sýnishorn. Vinnuteikningar. 14. Rifhnútur. Sex sýnishorn. Vinnuteikning, og heiti á garntegundum. 15. Hálfur hnútur um uppistöðuþráð. Þrjú sýnishorn. Vinnuteikningar. 16. Keðjuhnútur. Fimm sýnishorn. Vinnuteikning og heiti á garntegundum. 17. Spjaldofið band. 18. Fingrað band. Skriflegar leiðbeiningar. 19. Kirkjutaumur. Skriflegar leiðbeiningar. 20. Skutulsbragð, lárétt og lóðrétt. 21. Taska með fótofnu bandi. Taskan er úr íslensku ullarefni frá Álafoss. Einskeftuvefnaður.  Skreytt með fótofnu bandi, einnig í hankanum. Töskunni er lokað með fléttaðri hneslu og perlu. 22. Auð síða. Leiðbeiningar 23. Fléttur. 24. Brugðið band. 25. Krílað á sjö. 26. Hnýtt snúra eða fingrahekluð snúra. 27. Tólftottaband. 28. Krílað á þremur. 29. Starkóngur. 30. Fingruð bönd. 31. Stímuð bönd.  b)   Mappa. Hnýtingaprufur. Efni: Bómull. Júti. Ull. Hör. Nælon. Pappír. Plast. Tækni: Hnýting. Vigdís var kennari við Handavinnudeild KÍ og KHÍ 1964-1989. Verkefnin eru unnin á árunum 1970 til 1980. Tilraunavinna Vigdísar á meðan hún var starfandi kennari. Hnýtingar (macramé), ýmsar aðferðir í hnútagerð. Hnýtingar voru mjög vinsælar uppúr 1970 og fram yfir 1980. Haldin voru fjölmörg námskeið í hinum ýmsu aðferðum hnútagerðar. Verkefnin voru fjölbreytt. Dæmi: Gluggahengi, blómahengi, lampaskermar, myndir, veggskraut, töskur, belti, skartgripir o.fl. Námskeið í hnýtingum voru mjög vinsæl handverksnámskeið á þessum tíma og sumir töluðu um hnýtingaæði. Innihald möppu 1. Tvær prufur. Hnútagerðir: Skutulsbragð, flatur hnútur (rifhnútur), spíralhnútur, keðjuhnútur, jósefínuhnútur o.fl. 2. Belti eða band. Hnútagerð: Flatur hnútur. 3. Fimm smáprufur. Hnútagerðir: Skutulsbragð, flatur hnútur og fléttað með sex þráðum. 4. Ein stór prufa og tvær minni. Hnútaheiti: Skutulsbragð, lárétt og lóðrétt. 5. Ein stór prufa. Hnútaheiti: Flatur hnútur og skutulsbragð. 6. Tvær prufur. Hnútaheiti: Flatur hnútur og skutulsbragð. 7. Tvær prufur. Hnútaheiti: Jósefínuhnútur, einfaldur og tvöfaldur. Vinnuteikning. 8. Þrjár prufur og eitt hringlaga form sem er þrætt á þunnan vír. Þrjár prufur með flötum hnúti / rifhnúti. Gulbrún prufa úr hörgarni: Tvöfaldur keðjuhnútur. Vinnuteikning í Macramé, bók um hnýtingar (bls.56). Sjá lið 18 hér fyrir neðan. 9. Tvær prufur, hitaplatti og lítið sýnishorn af gólfmottu. Hnútaheiti: Jósefínuhnútur. Aðferðin er algeng í dyramottum úr grófum sisalþræði. Lítil litmynd af dyramottu fylgir. 10. Skriflegar leiðbeiningar og vinnuteikningar. 11. Marglit ugla. Hnútaheiti: Flatur hnútur, skutulsbragð og keðjuhnútur. 12. Hvít ugla. Hnútaheiti: Flatur hnútur, skutulsbragð og keðjuhnútur. 13. Lyklakippa. Hnútaheiti: Apahnútur. 14. Þrír servíéttuhringir. Tveir úr jútagarni og einn úr dökku nælongarni með perlum. Aðferðir: Flatur hnútur og skutulsbragð. 15 – 17. Vinnuteikningar. 18. Bók um hnýtingar. Heiti: Macramé. Höfundur: Anne-Marie Bober og Elsie Svennas, frá 1972. Gjöf frá Sigrúnu L. Baldvinsdóttur í safn Vigdísar. Í bókinni eru fjölmargar af þeim hnýtingaaðferðum sem eru í möppunni, bæði texti og skýringarmyndir. 19. Námskeiðslýsing Föndur, hnýtingar og bandagerð. Námskeiðið var eitt af námskeiðum Handavinnudeildar KHÍ árið 1989. Kennarar: Vigdís Pálsdóttir og Hallfríður Tryggvadóttir. Innihald möppunnar er ekki í beinum tengslum við námskeiðið. Mappan sýnir almenna undirbúningsvinnu Vigdísar í kennslu í hnýtingum. Hugur og hönd Í riti Heimilisiðnaðarfélags Íslands Hugur og hönd árið 1972, bls. 32 er fróðleg grein eftir Vigdísi um macramé (hnýtingar). Með greininni fylgja myndir af nokkrum munum og vinnuteikningar af tveimur algengum hnútum. Við bendum einnig á umfjöllun um hnýtingar í Hugur og hönd frá 1975 á bls. 21. Þar er getið um námskeið í hnýtingum sem Kristín Vigfúsdóttir hélt um 1930 og birtar myndir af tveimur sýnishornum sem unnin voru á námskeiðinu.  Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Snúrur og hnýtingar
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-34-20
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Prufumappa