Bútasaumur sýnishorn

1970 - 1985
Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. Vigdís var kennari við Handavinnudeild KÍ og KHÍ 1964-1989. Verkefnið var unnið á árunum 1970 til 1985. Tilraunavinna Vigdísar á meðan hún var starfandi kennari. a) Beltisbudda. Efni: Fjölbreyttar efnisgerðir. Tækni: Vélsaumur. Hnýtingar. Lítil budda sem er þrædd upp á belti. Saumuð úr ýmsum bútum, frjáls aðferð í saumavél. Böndin sem beltið þræðist í gegnum eru hnýtt með spýralhnút (macramé). Bútasaumur / bótasaumur Vigdís talaði um bótasaum en heitið bútasaumur er algengara í dag. Samkvæmt íslenskri orðabók (2002) er talað um bútasaum. Nafnið bót tengir við viðgerðir, það að bæta flík eða annað. Bútasaumur er aðferð þar sem saumaðir eru saman efnisbútar. Í skráningunni munum við nota orðið bútasaumur nema verið sé að skrá beint eftir gögnum Vigdísar.  Endurnýting Vigdís vann alla tíð með endurnýtingu. Það var henni eðlilegt að nýta efnis- og garnafganga og vinna úr gömlum fatnaði og öðrum textílum. Það má glöggt sjá á vinnu hennar í bútasaumi og útsaumi ásamt allra handa tilrauna- og föndurvinnu. Páll Baldvin sonur Vigdísar talar um “sjálfsprottna endurnýtingu”. b) Hitaplatti. Efni: Bómull. Gervi. Tækni: Handsaumur. Hitaplatti. Enskur bútasaumur, sexhyrningar. Handsaumur. Svampur innan í. Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. c) Pennaveski / snyrtiveski. Efni: Bómull. Gervi. Tækni: Vélsaumur. Útsaumur. Pennaveski / snyrtiveski. Efnisbútar / renningar saumaðir saman. Örlítill útsaumur á annarri hliðinni. Veskið er fóðrað. Kanturinn að ofan er bryddaður með herkúlesarbandi. Herkúlesarband er mjúkt og teygjanlegt band sem gott er að nota í bryddingar í stað skábandsVeskið er opið að ofan. Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. d) Pennaveski. Efni: Bómull. Tækni: Vélsaumur. Handsaumur. Pennaveski. Efnisrenningar saumaðir á undirlag. Veskið er bryddað með skábandi á þrjár hliðar og gengið frá því í höndum. Hliðarnar eru varpaðar saman og kanturinn að ofan er brotinn inn og saumaður niður í höndum. Veskið er hneppt að framan með tveimur handgerðum hneslum. Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. e) Pennaveski. Efni: Bómull. Gervi. Tækni: Handsaumur. Útsaumur. Pennaveski / snyrtiveski. Aðferðin heitir Crazy Quilt. Grófur handsaumur / útsaumur á öllum samskeytum. Bryddað með skábandi allan hringinn. Veskið er varpað saman á hliðum. Rannilás saumaður í að ofan í höndum. Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. f) Gleraugnahulstur. Efni: Bómull. Gervi. Tækni: Vélsaumur. Handsaumur. Útsaumur. Gleraugnahulstur. Bútar saumaðir saman, frjáls aðferð. Skreytt með útsaumi. Veskið er ein mjó lengja. Gengið er frá öllum brúnum með bryddingu sem er saumuð niður í höndum. Lokið er brotið niður og hneppt með handsaumaðri hneslu. Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. g) Veski. Efni: Bómull. Tækni: Vélsaumur. Veski sem er lokað með sokkabandakrækju. Lokið á veskinu er unnið með bjálkakofaaðferð og myndar spíss (odda). Veskið er fóðrað. Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. h) Titill: Pottaleppur. Efni: Bómull. Gervi. Tækni: Vélsaumur. Handsaumur. Bútasaumur með áherslu á endurnýtingu. Pottaleppur. Sexhyrningur með renningum. Saumaður hanki í eitt hornið.  Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Bútasaumur sýnishorn
Ártal
Aldur: 1970 - 1985
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-34-19
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna