Handavinnusýnishorn

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Fimm handavinnusýnishorn. Uppruni óþekktur.
e) Vettlingur. Sjá ljósmynd.
Efni: Ull.
Tækni: Prjón.
Tvíbanda vettlingur. Litir: Millibrúnn og dökkbrúnn. Vettlingurinn er greinilega notaður, því hann er slitinn og búið að gera við hann að hluta. Það er ekki vitað hver prjónaði hann.
a) Poki.
Efni: Ull.
Tækni: Handsaumur. Útsaumur.
Lítill poki eða hirsla til að geyma í garnspotta. Dæmigerð nýting fyrri tíma. Pokinn er allur handsaumaður. Aðferð: Pokinn er úr þunnu og slitnu ullarefni og litlum krosssaumsbút með blómamunstri. Hann ber þess merki að hafa verið í mikilli notkun. Inn í pokanum eru garnafgangar / afgangsspottar. Það er ekki vitað hver saumaði pokann.
Vigdís vann alla tíð með endurnýtingu. Það var henni eðlilegt að nýta efnis- og garnafganga og vinna úr gömlum fatnaði og öðrum textílum. Það má glöggt sjá á vinnu hennar í bútasaumi og útsaumi ásamt allra handa tilrauna- og föndurvinnu. Páll Baldvin sonur Vigdísar talar um “sjálfsprottna endurnýtingu”. Nýtni var nauðsynleg í öllu heimilishaldi áður fyrr, þegar lítið var til og þröngt í búi.
b) Íleppur.
Efni: Ull.
Tækni: Prjón.
Garðaprjónaður íleppur í skó. Miðstykkið er með röndóttum bekk í miðju. Gamall íleppur. Það er ekki vitað hver prjónaði hann.
c) Barnasokkur.
Efni: Ullargarn.
Tækni: Prjón.
Garðaprjónaður barnasokkur, sportsokkur. Sérstaða sokksins er að hann er prjónaður á tvo prjóna, fram og til baka og saumaður saman að aftan og fram í tá. Efst er stroff (slétt og brugðið), síðan garðaprjón. Gamall barnasokkur. Það er ekki vitað hver prjónaði hann.
d) Hælprufa.
Efni: Ull.
Tækni: Prjón.
Hælprufa. Sérstök aðferð við að prjóna hæl. Ekki vitað um heiti á aðferð. Gömul prufa. Það er ekki vitað hvaðan hún kemur.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Vigdís Pálsdóttir, Notandi
Gefandi: Vigdís Pálsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Vigdís Pálsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Handavinnusýnishorn
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-34-16
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Handavinnusýnishorn
