Handavinnusýnishorn
1969

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
a) Þvottastykki.
Efni: Bómull.
Tækni: Prjón.
Prjónað þvottastykki. Litur: Beinhvítur. Aðferð: Garðaprjón og slétt prjón sem hefur verið nefnt þvottapokaprjón vegna þvottapokans sem var lengi skylduvinna í 10 ára bekk í grunnskólum landsins. Garðaprjónskantur er að ofan og að neðan. Þvottastykkið er slitið á einu horninu og ber þess merki að hafa verið mikið notað.
Höfundur er Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, dóttir Vigdísar. Þvottastykkið er prjónað í Melaskóla árið 1969, unnið í 10 ára bekk. Stærð: 25 x 25 sm.
Sjá handskrifaðan miða sem fylgir. Skráð af Vigdísi og leiðrétt af Guðrúnu Jarþrúði.
b) Þvottapoki.
Efni: Bómull.
Tækni: Prjón. Hekl.
Prjónaður þvottapoki. Litur: Beinhvítur. Aðferð: Garðaprjón og slétt prjón sem hefur verið nefnt þvottapokaprjón vegna þvottapokans sem var lengi skylduvinna í 10 ára bekk í grunnskólum landsins. Garðaprjónskantur að ofan. Hekluð bleik blúnda í opið. Heklaður hanki með loftlykkjum í öðru horninu að ofan. Stærð: 20 x 12 sm.
Prjónaverkefnið er úr Melaskóla 1969, unnið í 10 ára bekk. Skráð af Vigdísi og leiðrétt af Guðrúnu Jarþrúði, höfundi pokans. Þvottapokinn ber þess merki að hafa verið í mikilli notkun.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, Hlutinn gerði
Vigdís Pálsdóttir, Notandi
Gefandi: Vigdís Pálsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Vigdís Pálsdóttir, Notandi
Gefandi: Vigdís Pálsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Handavinnusýnishorn
Ártal
1969
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-34-14
Staður
Staður: Melaskóli, Hagamelur 1, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°8'33.7"N 21°57'25.3"W
