Munir
1985 - 1986

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Útsaumsprufa.
Efni: Bómull.
Tækni: Útsaumur.
Nemendavinna úr Klébergsskóla Kjalarnesi skólaárið 1985-1986.
Lítil, hvít útsaumsprufa. Birnir sonur Jónínu saumaði prufuna í 10 ára bekk.
Útsaumsspor talin ofan frá: Þrefalt þræðispor með ídrætti og tvöfalt þræðispor með ídrætti. Krókspor, tvær línur saumaðar hvor yfir aðra. Stök greinaspor (Y spor) tvær línur, krókspor, tvær línur saumaðar hvor yfir aðra og neðst er skásaumað lykkjuspor. Fangamarkið BKEsaumað með stórum krosssaumssporum neðst á prufuna og ein lína með litlum krosssaumssporum saumuð undir stafina. Mislöng tunguspor (kappmelluspor) eru saumuð í kantinn utan um prufuna og efnið rakið upp að tungusporinu.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Birnir Kjartan Einarsson, Hlutinn gerði
Gefandi: Jónína María Sveinbjarnardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Jónína María Sveinbjarnardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Ártal
1985 - 1986
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-40-3
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
